Leikið við Noreg kl. 14:00 í dag - Textalýsing
Í dag hefst úrslitakeppni U19 kvenna í Hvíta Rússlandi og þar er íslenska liðið í eldlínunni. Fyrsti leikur liðsins er í dag við Noreg og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma eða kl. 17:00 að staðartíma.
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn og er það þannig skipað:
Byrjunarliðið (4-1-4-1):
Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir
Hægri bakvörður: Berglind Bjarnadóttir
Vinstri bakvörður: Thelma Björk Einarsdóttir
Miðverðir: Mist Edvardsdóttir og Silvía Rán Sigurðardóttir
Varnartengiliður: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Tengiliðir: Elínborg Ingvarsdóttir og Anna Þórunn Guðmundsdóttir
Hægri kantur: Dagný Brynjarsdóttir
Vinstri kantur: Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Framherji: Fanndís Friðriksdóttir, fyrirliði
Heimasíðan mun vera í sambandi við fararstjóra íslenska liðsins á meðan leik stendur og færa inn fréttir af leiknum.
Ísland - Noregur - Textalýsing
Leikurinn er hafinn en honum seinkaði um 5 mínútur. Íslenska liðið kom aðeins of seint á leikstað vegna mikillar umferðar og var leiknum seinkað af þeim sökum.
Fyrir leikinn voru það þrjár konur í þjóðbúningum sem afhentu fyrirliðum liðanna brauð og salt sem táknar mikla fengsæld í Hvíta Rússlandi.
Leikurinn hefst af krafti og strax á 1. mínútu þurfti Anna Þórunn að yfirgefa leikvöllinn til aðhlynningar eftir að hafa lent í harðri tæklingu. Hún kom inná þremur mínútum síðar og heldur áfram leik. Á 3. mínútu komu Norðmenn svo boltanum í netið en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Meiri kraftur í norska liðinu í byrjun en það stendur vonandi til bóta.
Leikurinn hefur jafnast og eftir 19 mínútur ákvað dómari leiksins, sem kemur frá Kazakstan, að nota tækifærið þegar Birna markvörður þurfti að laga skóbúnað sinn og hleypti öllum leikmönnum til að drekka vatn. Sólin er farin að láta sjá sig öðru hverju og verður ansi heitt að hún skín í gegn. Engin opin færi hafa litið dagsins ljós en Norðmenn heldur skeinuhættari ef eitthvað er. En staðan ennþá 0-0 eftir 20 mínútur.
Eftir hálftíma leik er staðan ennþá 0-0. Besta færi leiksins kom á 28. mínútu þegar að Dagný Brynjarsdóttir komst í gott færi eftir góða sókn íslenska liðsins en skaut naumlega framhjá.
Það er kominn hálfleikur og staðan er markalaus. Það skall hurð nærri hælum á 45. mínútu þegar að Norðmenn áttu þrumuskot í þverslá íslenska marksins eftir vel útfærða aukaspyrnu. Mínútu síðar átti svo Bergling Björg gott skot rétt yfir markið og stuttu síðar var blásið til leikhlés.
Eftir 62 mínútur er staðan enn markalaus. Íslenska liðið fékk gott færi eftir fimm mínútna leik þegar að Fanndís komst í færi eftir góða sendingu frá Elínborgu en skot Fanndísar fór naumlega framhjá. Fimm mínútum síðar vildu Norðmenn fá vítaspyrnu en dómarinn var ekki sammála því og leikurinn hélt áfram. Það var svo á 62. mínútu að Norðmenn komust í ágætis marktækifæri en boltinn smaug réttu megin við stöngina að mati Íslendinga.
Þegar 10 mínútur eru eftir af leiknum er staðan enn markalaus en norska liðið hefur þó undirtökin þessar mínútur. Birna hefur verið örugg í sínum aðgerðum í markinu og gripið vel inn í en norska liðið hefur ekki skapað sér opin marktækifæri þessar mínútur. Íslenska liðið beitir skyndisóknum og Fanndís skapar oft usla í vörn Norðmanna með hraða sínum.
Aðeins uppbótartími eftir og hefur 4. dómari gefið merki um að það verði þrjár mínútur. Mikil barátta hjá íslenska liðinu en norska liðið sækir meira.
Leikurinn hefur verið flautaður af og úrslitin markalaust jafntefli. Fyrsta stigið í höfn og getur íslenska liðið nokkuð vel við unað. Norska liðið sótti heldur meira í leiknum en vörn og markvarsla stóðu fyrir sínu. Síðustu marktilraunina áttu þó Íslendingar þegar að Andrea Ýr Gútstavsdóttir tók innkast með heljarstökki og boltinn barst til Fanndísar sem að skaut framhjá.
Í hinum leik riðilsins sigruðu Englendingar Svía með þremur mörkum gegn engu en íslenska liðið mætir því sænska á fimmtudaginn.
Vel fer um liðið í Minsk en æft var tvisvar sinnum í gær og gengu þær æfingar mjög vel. Mjög heitt hefur verið í Hvíta Rússlandi upp á síðkastið en í gær var skýjað og hitinn rétt rúmlega 20 gráður þannig að aðstæður voru mjög góðar. Í dag byrjaði svo að rigna og hitinn rétt um 15 stig og var hópurinn nokkuð kátur með veðrið.
Á sama tíma og Ísland og Noregur mætast leika Svíþjóð og England en þessar þjóðir eru einnig í B riðli. Í hinum riðlinum mætast Frakkar og Þjóðverjar annarsvegar og Hvíta Rússland og Sviss hinsvegar.