Einn nýliði í hópnum fyrir vináttulandsleiki við England og Danmörku
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt hópinn sem heldur til Englands í næstu viku og leikur vináttulandsleiki gegn Englandi og Danmörku. Leikið verður við England á heimavelli Colchester, fimmtudaginn 16. júlí en við Dani verður leikið sunnudaginn 19. júlí á Wheatheafs Park sem er heimavöllur utandeildarliðsins Staines Town FC.
Einn nýliði er í hópnum en það er Þórunn Helga Jónsdóttir sem leikur með Santos í Brasilíu.