Góður sigur á Dönum hjá U17 kvenna
Íslenska U17 kvennalandsliðið lauk í dag keppni á Opna Norðurlandamótinu sem fram fór í Svíþjóð. Stelpurnar léku gegn Dönum í dag um sjöunda sætið og höfðu góðan sigur, 1-0. Það var Sara Hrund Helgadóttir sem skorað mark Íslands í fyrri hálfleik.
Íslenska liðið var sterkara liðið í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik, en eina mark leiksins kom á 32. mínútu leiksins. Áður hafði íslenska liðið fengið þrjú mjög góð færi en ekki tekist að skora. Seinni hálfleikur var jafnari en íslenska liðið landaði verðskulduðum sigri.
Íslenska liðið hafnaði því í sjöunda sæti þessa móts sem er eitt það allra sterkasta sem haldið er í þessum aldursflokki.