Keflavík dæmdur sigur gegn Breiðabliki í eldri flokki karla
Aga- og úrskurðarnefnd hefur tekið fyrir mál Keflavíkur gegn Breiðabliki vegna leiks í eldri flokki karla. Úrskurðurinn er á þá leið að úrslitum leiksins skuli breytt og Keflavík dæmdur 3-0 sigur í leiknum. Jafnframt er Breiðabliki gert að greiða sekt.