Leikið við Færeyinga í U17 og U19 kvenna
Frændur okkar Færeyingar munu heimsækja okkur í júlí með U17 og U19 kvennalandslið sín og leika fjóra landsleiki við íslenskar stöllur sínar. Leikið verður í Hveragerði, Þorlákshöfn og Hvolsvelli.
Leikirnir fara fram laugardaginn 18. júlí og mánudaginn 20. júlí en á þessum tíma stendur yfir úrslitakeppni EM hjá U19 kvenna í Hvíta Rússlandi en þar verður Ísland í eldlínunni. Úlfar Hinriksson mun því stjórna U19 liðinu í þessum leikjum gegn Færeyjum í fjarveru Ólafs Þórs Guðbjörnssonar. Þorlákur Árnason mun að sjálfsögðu stjórna U17 liðinu.
Leikirnir eru eftirfarandi:
- Lau. 18. júlí kl. 12:00 U17 kvenna Þorlákshafnarvöllur Ísland - Færeyjar
- Lau. 18. júlí kl. 14:00 U19 kvenna Grýluvöllur Ísland - Færeyjar
- Mán. 20. júlí kl. 17:00 U17 kvenna Hvolsvöllur Ísland - Færeyjar
- Mán. 20. júlí kl. 17:00 U19 kvenna Þorlákshafnarvöllur Ísland - Færeyjar