Frakkar velja hópinn fyrir úrslitakeppnina í Finnlandi
Bruno Bini, landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Frakka, hefur valið hóp sinn fyrir úrslitakeppni EM kvenna í Finnlandi sem hefst í ágúst. Frakkar verða fyrstu mótherjar Íslendinga í úrslitakeppninni en þjóðirnar mætast í Tampere 24. ágúst. Í hópnum eru 22 leikmenn og koma flestir frá frönsku meisturunum í Lyon eða sjö talsins. Tveir leikmenn hópsins leika utan heimalandsins en þeir leika í hinni nýstofnuðu bandarísku atvinnumannadeild.
Franski hópurinn:
Markverðir:
- Sarah Bouhaddi (FCF Juvisy)
- Céline Deville (Montpellier Hérault SC)
- Bérangère Sapowicz (Paris Saint-Germain FC)
Varnarmenn:
- Delphine Blanc (RC Saint-Etienne)
- Sonia Bompastor (Washington Freedom)
- Ludivine Diguelman (Montpellier Hérault SC)
- Sandrine Dusang (Olympique Lyonnais)
- Laura Georges (Olympique Lyonnais)
- Ophélie Meilleroux (Nord Allier Yzeure)
- Sabrina Viguier (Montpellier Hérault SC)
Miðjumenn:
- Camille Abily (Los Angeles Sol)
- Élise Bussaglia (Montpellier Hérault SC)
- Corine Franco (Olympique Lyonnais)
- Amandine Henry (Olympique Lyonnais)
- Louisa Nécib (Olympique Lyonnais)
- Sandrine Soubeyrand (FCF Juvisy)
- Gaétane Thiney (FCF Juvisy)
Framherjar:
- Sandrine Brétigny (Olympique Lyonnais)
- Candie Herbert (FC Hénin-Beaumont)
- Eugénie Le Sommer (Stade Briochin FF)
- Élodie Thomis (Olympique Lyonnais)
- Laëtitia Tonazzi (FCF Juvisy)