Hefðbundin gönguferð í styttra lagi
Íslensku landsliðsmennirnir undirbúa sig nú undir leikinn við Makedóníu sem hefst í Skopje kl. 15:45 að íslenskum tíma. Í morgun kl. 10:00 að staðartíma, sem er 8:00 að íslenskum tíma, brugðu leikmenn og fylgdarlið sér í hinn hefðbundna göngutúr á leikdag.
Strax í morgun var hitinn orðinn 32 gráður svo ákveðið var að stytta göngutúrinn allverulega. Genginn var hringur í kringum hótelið, undir öruggri stjórn hins vegvísa búningastjóra Björns Ragnars Gunnarssonar og það látið gott heita í þetta skiptið.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst hann kl. 15:45. Upphitun fyrir leikinn hefst hinsvegar kl. 15:10 á Stöð 2 Sport.