Allt til reiðu í Makedóníu
Það styttist í leik Makedóníu og Íslands í undankeppni fyrir HM 2010 og hefst nú kl. 15:45 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Mikill hiti er nú í Skopje og sýnir hitamælirinn á leikvellinum 38 gráður nú 90 mínútum fyrir leik og gæti þetta gert leikmönnum beggja liða erfitt fyrir.
Hinn þvottekta búningastjóri, Björn Ragnar Gunnarsson, er alltaf við frostmark, með allt sitt á hreinu, enda fellur ekki blettur á hans störf eins og meðfylgjandi mynd úr búningsklefa íslenska liðsins sýnir.