Fimm leikmenn kallaðir í hópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert fimm breytingar á landsliðshópnum sem mætir Makedóníu á miðvikudaginn í undankeppni HM 2010. Inn í hópinn koma þeir Jóhann Berg Guðmundsson, Hjálmar Jónsson, Guðmundur Steinarsson, Davíð Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason. Koma þeir í stað Hermanns Hreiðarssonar, Indriða Sigurðssonar og Arons Einars Gunnarssonar sem eru í leikbanni, Eiður Smári Guðjohnsen er meiddur og þá dró Theodór Elmar Bjarnason sig út úr hópnum.
Leikurinn við Makedóníu verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst kl. 15:45, miðvikudaginn 10. júní.