Naumt tap hjá U21 karla gegn Dönum
Danir lögðu Íslendinga í vináttulandsleik hjá U21 karla í dag en leikið var í Álaborg. Lokatölur urðu 3-2 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu leitt í leikhléi, 2-1. Þeir Bjarni Þór Viðarsson, úr víti og Skúli Jón Friðgeirsson skorðuðu mörk Íslendinga.
Fylgst var með helstu atriðum leiksins í beinni textalýsingu hér á síðunni og má sjá þá lýsingu hér að neðan.
Næsti leikur liðsins er gegn Tékkum hér heima, miðvikudaginn 12. ágúst, en sá leikur er í undankeppni fyrir EM 2011.