Fyrirhuguðu Grasrótarnámskeiði frestað
Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu Grasrótarnámskeiði fyrir þjálfara sem átti að fara fram sunnudaginn 7. júní. Ljóst var að ekki mundi nást viðunandi fjöldi á námskeiðið og því ákveðið að fresta því. Skoðað verður síðar hvort að grundvöllur verður fyrir að halda þetta námskeið síðar.