Bjarni ánægður með markverðina
Bjarni Sigurðsson, markavarðaþjálfari íslenska landsliðsins, er fullur tilhlökkunar fyrir stórleikinn gegn Hollandi á laugardaginn. Hann segir markverði íslenska hópsins í fínu standi og hafi litið vel út á æfingum landsliðsins.
Það var hinn bláklæddi, Dagur Sveinn Dagbjartsson, sem ræddi við Bjarna á blaðamannafundi í dag.
Leikurinn fer fram á laugardaginn kl. 18:45 á Laugardalsvelli og fer miðunum ört fækkandi. Miðasala fer fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.