Magnús í eldlínunni í Wales
Magnús Þórisson verður í eldlínunni í dag þegar hann dæmir vináttulandsleik Wales og Eistlands. Leikurinn fer frá á Parc y Scarlets í Llanelli. Magnúsi til aðstoðar eru þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson.
Leikurinn er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sky Sports 2 og hefst hann kl. 18:30 að íslenskum tíma.