Breytingar á hópnum hjá U21 karla
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingar á hóp sínum fyrir vináttulandsleikinn gegn Dönum í Árósum þann 5. júní næstkomandi. Inn í hópinn koma þeir Guðmundur Steinn Hafsteinsson úr Val, Jósef Kristinn Jósefsson úr Grindavík og Rafn Andri Haraldsson úr Þrótti. Þeir koma inn í stað Guðmundar Reynis Gunnarssonar og Björns Bergmanns Sigurðarsonar sem eru meiddir. Þá gaf Gylfi Þór Sigurðsson ekki kost á sér í leikinn.