Héraðsdómaranámskeið þriðjudaginn 2. júní
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara.
Námskeiðið hefst kl. 19:30 og verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ.
Um er að ræða rökrétt framhald á unglingadómaranámskeiðinu þar sem aðaláherslan var á knattspyrnulögunum.
Gylfi Orrason er kennari á námskeiðinu og fer hann í mjög gott námsefni frá FIFA þar sem farið er í praktísku hlið dómgæslunnar.
Aldurstakmark 16 ára og er námskeiðið ókeypis.