Eyjólfur velur hóp fyrir vináttulandsleik við Dani
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Dönum þann 5. júní næstkomandi. Leikið verður í Álaborg á heimavelli AaB.
Þetta er fyrsti leikurinn undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar eftir að hann tók að nýju við stjórntaumum liðsins.
Ísland og Danmörk hafa mæst í 6 skipti í þessum aldursflokki. Þrisvar sinnum hafa þjóðirnar gert jafntefli, Íslendingar hafa unnið einu sinni en Danir tvisvar og hafa þeir sigrar komið í síðustu tveimur viðureignum þjóðanna.
Danir halda úrslitakeppni í EM hjá U21 karla árið 2011 og verður heimavöllur AaB einn af þeim leikvöngum er leikið verður á.