Hópurinn tilkynntur á morgun fyrir Holland og Makedóníu
Á morgun, þriðjudaginn 26. maí, verður haldinn blaðamannafundur í höfuðstöðvum KSÍ og hefst hann kl. 13:00. Á fundinum verður tilkynntur A landsliðshópur karla er mætir Hollandi á Laugardalsvelli 6. júní og Makedóníu ytra 10. júní. Báðir þessir leikir eru í undankeppni fyrir HM 2010.
Þá verður einnig tilkynntur hópurinn hjá U21 karla en liðið leikur vináttulandsleik gegn Dönum í Álaborg, föstudaginn 5. júní. Þetta verður fyrsti landsleikur liðsins undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar eftir að hann tók að nýju við stjórn liðsins.