Úrskurður í máli Kötlu gegn mótanefnd KSÍ
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur úrskurðað í máli Ungmennafélagsins Kötlu gegn mótanefnd KSÍ. Kæran var vegna ákvörðun mótanefndar að veita KFK sæti í C riðli 3. deildar karla.
Í úrskurðarorðum segir: "Ákvörðun mótanefndar KSÍ um að KFK taki sæti Snæfells í 3. deild karla sumarið 2009 stendur óhögguð."