Sigurður Ragnar fylgist með leikmönnum í Svíþjóð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, er í Svíþjóð en þar er hann að fylgjast með íslenskum leikmönnum í sænsku úrvalsdeildinni. Sigurður Ragnar fylgist með tveimur leikjum í þessari ferð en íslenskir leikmenn verða væntanlega fyrirferðamiklir í þessum leikjum.
Í kvöld verður Sigurður Ragnar á leik Linköpings og Kristiansstad og á morgun sér hann leik Malmö og Djurgården.