Ólöglegur leikmaður hjá BÍ/Bolungarvík gegn Reyni
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Kristján Fannar Ragnarsson lék ólöglegur með BÍ/Bolungarvík í leik gegn Reyni Sandgerði sem fram fór í B deild Lengjubikars karla, 3. maí síðastliðinn. Kristján var skráður í Magna.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð eru úrslit leiksins skráð 0-3 fyrir Reyni.