Ólöglegir leikmenn hjá ÍR í Lengjubikarnum
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Liliana Ramos og Sandra Björk Halldórsdóttir léku ólöglegar með ÍR í leik gegn GRV sem fram fór í B deild Lengjubikars kvenna, 3. maí síðastliðinn. Liliana er skráð í erlent félag en Sandra í Hauka.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð eru úrslit leiksins skráð 3-0.