Dómarar í Henson búningum
Knattspyrnusamband Íslands og Henson hafa gert með sér samning um að dómarar muni klæðast Henson búningum í ár. Hönnun búningana var í höndum KSÍ og Henson í samstarfi við íslenska dómara. Það er því alíslensk framleiðsla sem dómararnir klæðast á þessu keppnistímabili.
Á myndinni má sjá dómarana í leik Breiðabliks og Þór/KA í Pepsi-deild kvenna ásamt fyrirliðum liðanna. Dómari leiksins var Garðar Örn Hinriksson og honum til aðstoðar þær Bryndís Sigurðardóttir og Marína Ósk Þórólfsdóttir. Fyrirliðarnir eru Rakel Hönnudóttir Þór/KA og Erna Björk Sigurðardóttir Breiðabliki.