Kristinn dæmir Kazakhstan - England
Töluvert annríki verður hjá íslenskum dómurum á erlendri grundu á næstunni en nú er ljóst að Kristinn Jakobsson mun dæma leik Kazakhstan og Englands í undankeppni fyrir HM 2010. Leikið verður í Kazakhstan 6. júní næstkomandi. Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinnsson. Fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson.
Þá mun Magnús Þórisson dæma vináttulandsleik Wales og Eistlands í Wales, 29. maí næstkomandi. Aðstoðardómarar hans verða Jóhann Gunnar Guðmundsson og Frosti Viðar Gunnarsson.
Þá er Oddbergur Eiríksson að störfum þessa dagana í Þýskalandi þar sem hann er einn af aðstoðardómurum í úrslitakeppni EM hjá U17 karla.