• lau. 25. apr. 2009
  • Landslið

Leikur gegn Svíum í dag hjá U19 kvenna

Byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Ísrael í undankeppni EM U19 kvenna í september 2008.  Ísland vann leikinn 2-1
Byrjunarlid_U19_kvenna_Israel

Í dag leikur íslenska U19 ára stúlknalandsliðið annan leik sinn í milliriðli EM 2009 en leikið er í Póllandi. Íslenska liðið lagði Dani að velli 3-2 í fyrsta leik en í dag mæta þær Svíum og hefst leikurinn kl. 10:00 að íslenskum tíma. Ólafur Þór Guðbjörnsson gerir tvær breytingar á liðinu frá sigurleiknum gegn Dönum, Andrea Ýr Gústavsdóttir kemur inn í liðið í stað Katrínar Ásbjörnsdóttur, sem er meidd og Arna Sif Ásgrímsdóttir er búin að jafna sig á veikindum sem hrjáðu hana í leiknum gegn Dönum og kemur hún inn í liðið í stað Freyju Viðarsdóttur.

Byrjunarliðið (4-5-1):

Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir

Vinstri bakvörður: Thelma Björk Einarsdóttir

Hægri bakvörður: Berglind Bjarnadóttir

Miðverðir: Silvía Rán Sigurðardóttir og Mist Edvardsdóttir

Miðjumenn: Arna Sif Ásgrímsdóttir, Anna Þórunn Guðmundsdóttir og Elínborg Ingvarsdóttir

Hægri kantur: Andrea Ýr Gústavsdóttir

Vinstri kantur: Berglind Björg Þorvaldsdóttir

Framherji: Fanndís Friðriksdóttir fyrirliði

Síðar í dag leika heimamenn, Pólverjar gegn Dönum, og hefst sá leikur kl. 13 að íslenskum tíma.