Sandra inn í hópinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur gert eina breytingu á hópnum er mætir Hollandi í vináttulandsleik á laugardaginn. Markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir úr Stjörnunni kemur inn í hópinn í stað Guðbjargar Gunnarsdóttur sem er meidd.
Leikurinn verður leikinn í Kórnum og hefst kl. 16:00. Miðasala verður á leikstað frá kl. 14:00.