U19 kvenna heldur til Póllands á morgun
Á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, heldur landslið U19 kvenna til Póllands þar sem þær leika í milliriðli fyrir EM. Ísland er í riðli með heimastúlkum, Dönum og Svíum og kemst efsta lið riðilsins í úrslitakeppnina sem leikin verður í Hvíta Rússlandi að þessu sinni. Fyrsti leikur liðsins verður gegn Dönum á fimmtudaginn.
Heimasíðan hitti Ólaf Þór Guðbjörnsson, þjálfara U19 kvenna og ræddi stuttlega við hann um verkefnið framundan.