Leikið gegn Færeyjum í U17 og U19 kvenna
Ákveðið hefur verið að leika fjóra vináttuleiki milli yngri landsliða Íslands og Færeyja í sumar en leikið verður á Suðurlandi. Leikirnir eru þáttur í auknum samskiptum Íslands og Færeyja í kvennaknattspyrnu og ætlunin er að leikir á milli þessa liða verði jafnvel árviss viðburður til skiptis á Íslandi og í Færeyjum. U19 ára liðið leikur tvo leiki og U17 ára liðið jafnframt tvo leiki.
Fyrri leikirnir fara fram 18. júlí í Hveragerði og í Þorlákshöfn og þeir síðari fara fram 20. júlí í Þorlákshöfn og á Hvolsvelli.