• fim. 16. apr. 2009
  • Fræðsla

Unglingadómaranámskeið hjá Hetti í fyrirlestrarsal ME

Dómaraflauta eða hljóðfæri?
domaraflauta

Unglingadómaranámskeið hjá Hetti  verður haldið í fyrirlestrarsal ME 22. apríl  kl. 16:30.  Um að ræða tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.

Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.

Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið er ókeypis.

Skráning er hafin hjá magnus@ksi.is