Oddbergur dæmir í Þýskalandi
Oddbergur Eiríksson hefur verið valinn sem einn af aðstoðardómurum í úrslitakeppni EM hjá U17 karla. Úrslitakeppnin fer fram í Þýskalandi dagana 6. - 18. maí. Fjórtán dómarar hafa verið valdir til að starfa við úrslitakeppnina, sex dómarar og átta aðstoðardómarar og koma þeir frá fjórtán löndum.