Norskur dómari á Ísland - Holland
Þegar Ísland og Holland mætast í vináttulandsleik í Kórnum þann 25. apríl næstkomandi, verður norskur dómari við stjórnvölinn. Hún heitir Ann-Helene Östervold. Aðstoðardómararnir verða íslenskir, Bryndís Sigurðardóttir og Marína Þórólfsdóttir. Fjórði dómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Þetta eru fyrstu A landsliðsverkefni hjá íslensku dómurunum en Bryndís er nýlega komin inn á dómaralista FIFA, fyrst íslenskra kvendómara.
Leikurinn hefst kl. 14:00 í Kórnum, laugardaginn 25. apríl.