Úrtaksæfingar hjá U19 kvenna um páskana
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið úrtakshóp til æfinga um páskana. U19 kvenna leikur í milliriðli fyrir EM sem leikinn verður í Póllandi. Þar er liðið í riðli með heimastúlkum, Dönum og Svíum. Fyrsti leikur liðsins verður 23. apríl gegn Danmörku.