Leikið í Álaborg hjá U21 karla
Það hefur verið ákveðið að vináttulandsleikur Danmerkur og Íslands hjá U21 karla, fari fram í Álaborg á heimavelli AaB. Leikurinn fer fram 5. júní og hefst kl. 12:30 að íslenskum tíma.
Leikur þessi er hluti af samkomulagi á milli knattspyrnusambanda Danmerkur og Íslands en þessi landslið léku vináttulandsleik hér á landi á síðasta ári. Þeim leik lauk með sigri Dana, 0 - 2.
Danir halda úrslitakeppni í EM hjá U21 karla árið 2011 og verður heimavöllur AaB einn af þeim leikvöngum er leikið verður á.