Ólöglegur leikmaður hjá ÍBV gegn HK/Víking
Í samræmi við lið 10.2 í reglugerð um Deildarbikarkeppni hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Þórhildur Ólafsdóttir lék ólögleg með ÍBV í leik gegn HK/Víkingi. sem fram fór í Lengjubikar kvenna, 21. mars síðastliðinn. Þórhildur var skráð í félag í Englandi.
Í samræmi við ofangreinda reglugerð skulu úrslit leiksins standa óbreytt.