Í eftirliti um víðan völl
Þeir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, og Egill Már Markússon verða eftirlitsmenn á vegum FIFA og UEFA á landsleikjum sem fara fram á næstunni.
Geir verður eftirlitsmaður FIFA á leik Lúxemborgar og Lettlands en þessar þjóðir eru jafnar að stigum í 2. riðli undankeppni HM 2010. Leikurinn fer fram á Josy Barhtel leikvangnum í Lúxemborg.
Egill Már verður hinsvegar dómaraeftirlitsmaður UEFA á leik Skotlands og Albaníu í undankeppni EM 2011 hjá U21 karla. Sá leikur fer fram í Falkirk í Skotlandi.