Davíð Þór Viðarsson í landsliðshópinn
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert breytingu á landsliðshóp sínum er mætir Skotum á Hampden Park, miðvikudaginn 1. apríl næstkomandi. Ólafur hefur valið Davíð Þór Viðarsson úr FH í hópinn og kemur hann í stað Brynjars Björns Gunnarssonar sem er meiddur.
Áður hafði Ólafur bætt þeim Ármanni Smára Björnssyni og Birki Bjarnasyni inn í hópinn í stað þeirra Heiðars Helgusonar og Birkis Más Sævarssonar.