• þri. 24. mar. 2009
  • Leyfiskerfi

Ánægjukönnun á meðal leyfisumsækjenda 2009

Knattspyrna á Íslandi
missing_badges

Að loknu leyfisferlinu á ári hverju fer fram svokallað árlegt endurmat, að kröfu UEFA, þar sem farið er yfir alla þætti kerfisins og skoðað hvað vel hefur gengið og hvað mætti betur fara.

Einn mikilvægur þáttur í þessu endurmati er að óska eftir upplýsingum frá leyfisumsækjendum um þessi atriði.  Hvað fannst fulltrúum félaganna?  Hvað var vel gert og hvað mætti betur fara?

Svör bárust frá 17 félögum af þeim 25 sem undirgengust leyfiskerfið að þessu sinni (öll félög í efstu deild karla og 1. deild karla undirgangast kerfið, auk Njarðvíkur í 2. deild karla) og hér að neðan er stiklað á stóru um helstu atriðin sem fram komu.

  • Almenn ánægja er með þá þjónustu og þann stuðning sem leyfisstjórn KSÍ veitir leyfisumsækjendum.
  • Fulltrúum félaganna finnst þetta vera gott tæki til að hjálpa félögunum við starfið, gefur ákveðnar línur sem gott er að vinna eftir.
  • Kerfið er strangt og erfitt, en skilar árangri.
  • Kostnaður vegna endurskoðunar ársreikninga hækkaði verulega hjá mörgum félögum á þessu ári (þó ekki öllum) þar sem kröfur vegna vinnu við endurskoðun voru auknar verulega. Af þessum sökum óskuðu flest félögin eftir því að kröfur vegna endurskoðunar væru lækkaðar, þannig að könnunaráritun endurskoðanda væri látin duga, í stað fullrar áritunar.
  • Nokkur félög óskuðu eftir því að slegið væri af kröfum varðandi upplýsingagjöf á fjárhagslegum þáttum og lagðar fram tillögur til einföldunar á þeirri upplýsingagjöf.
  • Tímamörk vegna skila á fjárhagslegum gögnum þykja sumum þröng.
  • Loks var leyfisstjórn bent á að vanda vinnubrögð í tengslum við mat á menntun þjálfara, þar sem útgefnar ákvarðanir leyfisráðs stönguðust á við raunverulega menntun ákveðinna þjálfara.  Bæta þyrfti skráningu á þjálfaramenntun.

Leyfisstjórn þakkar leyfishöfum kærlega fyrir góða þátttöku í þessari könnun og mun taka allar ábendingar til skoðunar.  Við sumum ábendingum hefur þegar verið brugðist.

  • KSÍ hefur þegar sent erindi til UEFA varðandi það hvort könnunaráritun geti komið í stað fullrar áritunar endurskoðanda og hefur UEFA staðfest að sú beiðni verði tekin fyrir á fundi leyfisnefndar UEFA.
  • Skráning á menntun þjálfara í gagnagrunn KSÍ hefur þegar verið endurbætt með lagfæringum/viðbótum á hugbúnaði.