Miðar á Ísland - Færeyjar fyrir handhafa A-passa
Handhafar A-passa frá KSÍ fá aðgöngumiða á leikinn Ísland - Færeyjar afhenta fimmtudaginn 19. mars frá kl. 10:00 - 16:00. Miðarnir verða afhentir á skrifstofu KSÍ gegn framvísun skírteinis. Það eru A-passar frá árinu 2008 sem gilda.
Möguleiki er að panta miða í síma 510-2900 á sama tíma, þ.e. þeir sem ekki komast að sækja miða á tilgreindum degi/tíma. Athugið að mjög takmarkað magn af miðum er í boði á þennan leik.
Leikurinn við Færeyjar fer fram í Kórnum, sunnudaginn 22. mars og hefst kl. 14:00.
Vegna framkvæmda við aðalinngang sambandsins þarf að ganga inn um norðurendann (vinstra megin við aðalinngang, inngangur merktur N) og fara þar upp á 2. hæð.