• þri. 17. mar. 2009
  • Landslið

Dregið í undankeppni HM kvenna 2011 í dag

Merki HM kvenna í Þýskalandi 2011
HM_kvenna_2011

Í dag kl. 12:30 verður dregið í undankeppni UEFA fyrir HM kvenna 2011 sem fer fram í Þýskalandi.  Dregið verður í höfuðstöðvum UEFA í Sviss og verða þau Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, og Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, viðstödd dráttinn.

UEFA á 4 sæti í úrslitakeppni HM og eitt lið til viðbótar hefur möguleika á að vinna sér sæti í gegnum aukaleiki við CONCACAF. 41 lið frá Evrópu taka þátt og leika þau í 8 riðlum, einum 6 liða riðli og sjö 5 liða riðlum.

Sigurvegarar riðlanna fara í aukaleiki og sigurvegararnir í þeim leikjum fara í úrslitakeppnina. Þau lið sem tapa í þessum leikjum fara aftur í aukaleiki og sigurvegari þeirra leikja leika enn aðra aukaleiki við CONCACAF um sæti í úrslitakeppninni. Leiðin í úrslitakeppnina getur því verið ansi löng.

Í 5 liða riðlunum verða 1 lið úr hverjum potti, í 6 liða riðlinum verða 1 lið úr styrkleikaflokki A, B, C og D en 2 úr styrkleikaflokki E.

Styrkleikaflokkarnir eru þannig skipaðir: 

A: Svíþjóð, Noregur, Danmörk, England, Frakkland, Rússland, Úkraína og Ítalía.

B: Finnland, Ísland, Spánn, Tékkland, Holland, Skotland, Írland og Pólland.

C: Sviss, Austurríki, Serbía, Hvíta-Rússland, Belgía, Grikkland, Portúgal og Ungverjaland.

D: Slóvenía, Slóvakía, Ísrael, Wales, Rúmenía, N-Írland, Tyrkland og Búlgaría.

E: Króatía, Armenía, Bosnía-Herzegovína, Kazakhstan, Azerbaijan, Eistland, Malta, Makedónía og Georgía.

Samið verður um leikdaga strax eftir dráttinn, fyrsti leikur Íslands verður í september.

Riðlaskipanin verður birt hér á síðunni um leið og hún liggur fyrir.