Burley velur 26 leikmenn í skoska hópinn
George Burley, landsliðsþjálfari Skotlands, hefur valið 26 leikmenn í hóp sinn fyrir leiki gegn Hollandi 28. mars og Íslandi, miðvikudaginn 1. apríl. Skotar leika gegn Hollendingum í Amsterdam en leikurinn við Ísland verður á Hampden Park. Skotar unnu Íslendinga hér á Laugardalsvellinum á síðasta ári, 1-2.
Burley er með nokkuð leikreynt lið í höndunum og fátt sem kemur á óvart í vali hans. Í hópnum eru nokkrir leikmenn sem hafa verið meiddir að undanförnu og treystir Burley á að þeir verði búnir að jafna sig fyrir þessa leiki. Þeirra á meðal eru markvörðurinn Craig Gordon hjá Sunderland, bakvörðurinn Alan Hutton hjá Tottenham og hinn skeinuhætti Kris Commons hjá Derby County.
Fjórir leikmenn hópsins leika með félögum í ensku úrvalsdeildinni, tíu leikmenn leika í ensku Championship deildinni og tólf leikmenn leika með félögum í Skotlandi.
Hópinn skipa eftirfarandi leikmenn:
Markverðir
- Craig Gordon (Sunderland)
- Allan McGregor (Rangers)
- David Marshall (Norwich City)
Varnarmenn
- Graham Alexander (Burnley)
- Darren Barr (Falkirk)
- Christophe Berra (Wolves)
- Kirk Broadfoot (Rangers)
- Gary Caldwell (Celtic)
- Alan Hutton (Tottenham Hotspur)
- Jamie McAllister (Bristol City)
- Stephen McManus (Celtic)
- Gary Naysmith (Sheffield United)
- David Weir (Rangers)
Miðjumenn
- Scott Brown (Celtic)
- Kris Commons (Derby County)
- Barry Ferguson (Rangers)
- Darren Fletcher (Manchester United)
- Paul Hartley (Celtic)
- James Morrison (WBA)
- Gavin Rae (Cardiff City)
- Gary Teale (Derby County)
Framherjar
- David Clarkson (Motherwell)
- Steven Fletcher (Hibernian)
- Chris Iwelumo (Wolves)
- Ross McCormack (Cardiff City)
- Kenny Miller (Rangers)