30 leikmenn æfðu í Fjarðabyggðahöllinni
Síðastliðinn sunnudag fóru fram úrtaksæfingar hjá U16 og U17 karla og var æft tvisvar í Fjarðabyggðahöllinni. Það voru landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, sem stjórnuðu æfingunum. Um 30 leikmenn frá 8 félögum voru á þessum æfingum.
Hér að neðan má sjá myndir sem teknar voru í Fjarðabyggðahöllinni.