Finnskir dómarar í eldlínunni
Dómarar í leik Íslands og Kína sem hefst núna klukkan 11:30 eru frændur okkar Finnar. Dómarinn er góðkunningji okkar Íslendinga og heitir Kirsi Savolainen. Hún dæmdi einmitt úrslitaleik Þýskalands og Frakklands í úrslitakeppni EM U19 kvenna sem leikin var hér á landi árið 2007.
Aðstoðadómarar hennar eru Tonja Gaavola og Ana Jokela. 4. dómarinn kemur frá Ghana og heitir Mercy Tagoe - Quardoo.
Fylgst verður með leiknum hér á síðunni.