Byrjunarliðið gegn Kína - Leikurinn hefst kl. 11:30
Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, leika Ísland og Kína um 5. sætið á Algarve Cup og hefst leikurinn kl. 11:30. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið fyrir leikinn.
Byrjunarlið (4-5-1):
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Varnartengilðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður: Margrét Lára Viðarsdóttir
Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir
Vinstri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Framherji: Harpa Þorsteinsdóttir
Margrét Lára Viðarsdóttir mun leika sinn 50. landsleik á morgun.
Andinn er góður í hópnum og leikmenn staðráðnir í því að enda mótið á sömu nótum og það hófst. Leikið er einmitt á sama velli og fyrsti leikur liðsins á mótinu, gegn Noregi, fór fram.
Fylgst verður með leiknum hér á síðunni með textalýsingu.