Æfingar hjá U16 og U17 karla á Austurlandi
Um komandi helgi verða æfingar fyrir úrtakshópa hjá U16 og U17 karla á Austurlandi. Það verða þeir Freyr Sverrisson og Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfarar U16 og U17 karla, er stjórna æfingunum.
Æfingarnar fara fram á sunnudaginn og verða tvær æfingar í Fjarðabyggðahöllinni.