Byrjunarliðið gegn Dönum á Algarve
Íslenska kvennalandsliðið mætir því danska á morgun, mánudaginn 9. mars og hefst leikurinn kl. 15:00. Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur tilkynnt byrjunarliðið gegn Dönum en með jafntefli tryggir íslenska liðið sér 2. sæti riðilsins og þar með leik um þriðja sæti mótsins.
Byrjunarlið (4-5-1):
Markvörður: María B. Ágústsdóttir
Hægri bakvörður: Erna B. Sigurðardóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Varnartengilðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður: Dóra María Lárusdóttir
Hægri kantur: Rakel Hönnudóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir verður ekki á meðal varamanna vegna meiðsla sem hún hlaut í leiknum gegn Bandaríkjunum. Þá er ólíklegt að Katrín Ómarsdóttir verði leikfær vegna meiðsla sem hún glímir við. Sif Atladóttir er hinsvegar klár í leikinn eftir meiðslin sem hún hlaut á föstudaginn og Fanndís Friðriksdóttir er komin inn í hópinn.
Í morgun var ein löng æfing þar sem farið var vel yfir leikskipulagið gegn Dönum. Eftir hádegið var svo gefið frí. Það nýttu leikmenn og starfsmenn hið ýtrasta og annað hvort lögðust til hvíldar en fundu leiðir til að svala keppnisskapi sínu.
T.a.m. var haldið opna læknamótið í skák (Doctor Open) og fór þar fyrirliðinn, Katrín Jónsóttir, á kostum og lagði andstæðing sinn örugglega af velli enda fáir snjallari þegar kemur að kóng – indverskri vörn.
Þá var haldið tennismót starfsmanna þar sem aðstoðarþjálfarinn, Guðni Kjartansson, sýndi fádæma öryggi og sigraði bæði í sínum aldursflokki sem og opnum flokki. Veðrið er byrjað að leika við hópinn eftir fremur bleika byrjun og skín sólin nú sem aldrei fyrr.