Undirbúningur fyrir Danaleikinn hafinn
Í morgun æfði kvennalandsliðið á Algarve en þar með hófst undirbúningur fyrir leikinn gegn Danmörku sem fer fram kl. 15:00 á mánudaginn. Allir leikmenn hópsins, fyrir utan Söru Björk Gunnarsdóttur, tóku þátt í æfingunni.
Sara Björk fór í myndatöku í gær og reyndist ekki brotinn en óvíst hvort hún verði meira með á Algarve. Sif Atladóttir, sem einnig var borin útaf í gær, tók því rólega á æfingunni en ágætlega lítur út með hana.
Frí er seinni part dagsins og hafa leikmenn þá frjálsar hendur og fætur. Tvær æfingar verða svo á morgun.
Vel fer um mannskapinn og virkilega góður andi í hópnum sem yrði jafnvel enn betri ef sólin mundi skína af afli næstu daga.
Mynd: Þar sem fáeinir leikmenn gátu ekki beitt sér að fullu á æfingunni í morgun bættist enn á víðtækt starfssvið búningastjórans. Hér er Ragnheiður Elíasdóttir að taka eina af sínu frægu utanfótarspyrnum og ekki var sökum að spyrja!