Fanndís kemur inn í hópinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur kallað Fanndísi Friðriksdóttur inn í landsliðshópinn er leikur á Algarve. Er hún kölluð inn í hópinn þar sem Guðný Björk Óðinsdóttir mun ekki leika á mótinu vegna veikinda.
Fanndís mun halda til Algarve á morgun, laugardag, og hitta hópinn síðar sama dag. Eins og kunnugt er leika Ísland og Bandaríkin í dag kl. 15:00 en á mánudaginn verður leikið við Dani.