Byrjunarlið Íslands gegn Bandaríkjunum á Algarve
Ísland leikur sinn annan leik á Algarve mótinu þegar það mætir Bandaríkjunum og hefst leikurinn kl. 15:00. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og gerir hann eina breytingu frá leiknum gegn Noregi.
Sif Atladóttir hefur leikinn í hægri bakverðinum í stað Ástu Árnadóttur en byrjunarliðið er þannig skipað:
Byrjunarlið (4-5-1):
Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir
Hægri bakvörður: Sif Atladóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
Varnartengilðir: Edda Garðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir
Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir
Allir leikmenn hópsins eru tilbúnir í slaginn gegn efsta liðinu á heimslista FIFA fyrir utan Guðnýju Björk Óðinsdóttur sem mun ekki leika á mótinu vegna veikinda.
Þetta er í 10. skiptið sem Ísland og Bandaríkin hafa mæst í A landsleik kvenna og hefur Ísland aldrei farið með sigur af hólmi. Einu sinni hafa þjóðirnar gert jafntefli, 8. apríl 2000 þegar leikið var í Charlotte. Þremur dögum áður léku þessar þjóðir og sigraði þá bandríska liðið með átta mörkum gegn engu. En í leiknum gegn Charlotte átti Þóra Helgadóttir markvörður sannkallaðan stórleik og, þrátt fyrir stanslausa sókn heimastúlkna, lauk leiknum með markalausu jafntefli.
Bandaríkin lögðu Danmörku í fyrstu umferðinni í Algarve Cup með tveimur mörkum gegn engu.