Sigurður Ragnar og María í Grafarholtinu
Þau Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna og María B. Ágústsdóttir landsliðsmarkvörður heimsóttu skóla í Grafarholtinu í dag. Vel var tekið á móti þeim bæði í Sæmundarskóla og Ingunnarskóla þar sem þau komu færandi hendi og kynntu krökkunum fyrir töfrum knattspyrnunnar.
Knattspyrnudeild Fram heldur úti yngri flokka starfi í Grafarholtinu og hefur starfið farið þar vel af stað enda mikill knattspyrnuáhugi, bæði hjá strákum og stelpum.