Unglingadómaranámskeið hjá ÍA
Unglingadómaranámskeið hjá ÍA verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Akranesi miðvikudaginn 4 .mars kl. 17:00. Um að ræða rúmlega tveggja tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.
Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Námskeiðið er ókeypis.
Skráning er hafin hjá magnus@ksi.is