Hópurinn valinn fyrir Algarve Cup 2009
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er heldur til Algarve næstkomandi mánudag og leikur þar á Algarve Cup. Ísland er í riðli með Noregi, Bandaríkjunum og Danmörku.
Sigurður Ragnar hefur valið 20 leikmenn í þetta verkefni en fyrsti leikurinn verður gegn Noregi, miðvikudaginn 4. mars. Bandaríkin verða mótherjarnir föstudaginn 6. mars og Danmörk mánudaginn 9. mars. Allir leikirnir hefjast kl. 15:00 að íslenskum tíma. Leikið verður um sæti miðvikudaginn 11. mars.